Lokakvöldið

Þröllinn skrifaði þann 29. maí 2010 í flokkinn Eurovision, Eurovision 2010

Jæja, eru ekki allir komnir í gírinn??? Get sjálfur ekki neitað því að spennan er aðeins farin að byggjast upp :) Nú ætla ég að analýsera lögin sem verða spiluð í fyrsta sinn í kvöld og koma svo með aðrar hugleiðingar um kvöldið og spá.

Spánn
Daniel Diges stígur annar á svið í kvöld fyrir hönd Spánverja, beint á eftir Azerbaijan. Ég verð að játa að ég er engan veginn að fíla þennan söngleikjavals þeirra Spánverja en einhverjir euronördarnir eru engu að síður að spá þessu í toppbaráttunni. Hann er víst búinn að standa sig mjög vel á æfingum en ég get engu að síður ómögulega séð þetta fyrir mér fyrir ofan miðju.

Noregur
Norðmenn tefla fram sænskri Josh Groban wannabe kraftballöðu með hinum sykraða Didrik Solli-Tangen. Þetta er í grunninn alveg allt í lagi en samt aðeins of mikil formúla fyrir minn smekk. En það er ýmislegt að þessu. Didrik hefur átt í miklum erfiðleikum með að ná djúpu tónunum og í norsku undankeppninni var hann bara verulega falskur. Þess utan eru töluvert betri ballöður með meira heillandi flytjendum, þar fara helst ísraelska ballaðan og sú írska. Auk þess er ekki gott að vera svona snemma í röðinni með svona ballöður, Norðmenn eru þriðju á svið. Ég á því ekki von á því að Norðmenn þurfi að hafa áhyggjur af því að þurfa að halda þetta annað árið í röð og þetta kemur væntanlega til með að enda um einhvers staðar í miðjubaráttunni.

Bretland
Engin þjóð hefur lagt minni metnað í keppnina undanfarin ár en Bretar. Þeir bættu sig þó aðeins í fyrra þegar þeir fengu sjálfan Andrew Lloyd Webber til að semja lagið fyrir sig og það skilaði þeim í fimmta sætið. Nú eru þeir aftur dottnir í sama ruslið, fengu einhverja útbrunna lagahöfunda sem hafa ekki átt smell síðan á 9. áratugnum til að semja einhverja útþynnta eitís ballöðu og fengu svo einhvern strákling á tvítugsaldri til að syngja. Josh heitir flytjandinn og er svo greinilega ekki vanur því að standa á sviði því hann er svo skíthræddur við myndavélarnar að hann langar mest til að hverfa. Út kemur bara glatað atriði sem ég get ekki ímyndað mér að nokkur maður kjósi. Ég ætla því að spá Bretum botnsætinu í ár.

Frakkland
Það verður alla veganna ekki af Frökkum tekið að þeir eru í stuði. Jessy Matador heitir flytjandinn og er ættaður frá Kongó, einhver sagði eftir að hafa séð Jessy á æfingum að Frökkum hefði tekist að finna eina taktlausa blökkumanninn í öllu Frakklandi en æfingarnar gengu víst mjög illa til að byrja með en hafa víst farið skánandi eftir það en ekki tekist fullkomlega upp enn þá. Ef þetta lag ætlar að eiga einhvern séns til að komast í topp 10 þá þarf allt að ganga 100% á lokakvöldinu. Ég á von á því að þetta verði í neðri hlutanum í kvöld.

Þýskaland
Þjóðverjar héldu risaforkeppni í mörgum þáttum sem minnti á laugardagslögin okkar hérna um árið. Unser Star für Oslo kölluðu þeir forkeppnina sína og það var hin 18 ára gamla Lena Meyer-Landrut sem bar sigur úr býtum. Lena sem nú er nýorðin 19 syngur lagið Satellite en mörgum þykir það minna svolítið á Jungledrum lagið hennar Emilíönu Torrini. Þetta virðist ætla að verða svona love or hate lagið í ár, annaðhvort fíla menn það eða þola það ekki. Veðbankarnir hafa verið nokkuð hrifnir af þessu lagi og hafa haft það í öðru sæti á eftir Azerbaijan nánast frá upphafi. Ég er ekki að sjá það enda svo ofarlega en það á örugglega eftir að verða efst af þeim lögum sem þurftu ekki að taka þátt í forkeppninni. Ég spái því í topp 10.

Drátturinn fór heldur illa með sigurlíkur Azera en þeir stíga fyrstir á svið í kvöld. Frammistaða þeirra var heldur ekki að slá í gegn í forkeppninni en henni gekk víst miklu betur á æfingunni í gær sem er frammistaðan sem dómnefndirnar dæma út frá. Ég á því enn þá von á því að Azerbaijan verði ofarlega en ég spái þeim ekki lengur sigri.

Armenar vöktu vissulega athygli í forkeppninni fyrir skemmtilega brjóstaskoru og fjörugt atriði. Sjálfur hefði ég reyndar kosið að Eva Rivas væri aðeins rólegri á sviðinu og einbeitti sér að söngnum og að sýna brjóstin en það verður ekki á allt kosið. Armenar fengu góðan drátt og verða 21. á sviðið í kvöld. Ég ætla að spá Armenum sigri í keppninni í ár. Armenum hefur alltaf gengið vel frá því þeir hófu að taka þátt árið 2006 þrátt fyrir að vera jafnvel með miklu verri lög og aldrei endað neðar en 10. sæti sem þeir lentu í í fyrra. Armenar geta bæði treyst á Sovíetblokkina með atkvæði og innflytjandur í Vestur-Evrópu. Ég tippa því á að tími Armena sé kominn.

Íslendingar þykja ekki alveg jafnheppnir með dráttinn. Þó það sé í raun allt í lagi að vera númer 16 þá erum við beint á eftir Albaníu sem er með frekar svipað lag. Það þykir víst ekki vænlegt til árangurs. Aftur á móti kemur Úkraína beint á eftir okkur og betri kontrast er sennilega ekki hægt að fá en það.

Danir fengu draumadráttinn, eru síðastir á svið á eftir tveimur rólegum ballöðum. Dönum gekk líka vel á æfingu í gær og hver veit nema þeir toppi bara á réttum tíma. Ég er samt ekki viss um að það dugi Dönum í toppbaráttuna

Gaman að segja frá því að Svíar stóðu að baki 6 lögum í keppninni í ár, Azerbaijan, Noregur, Danmörk, Írland og Georgía komust öll áfram með sænska lagahöfunda en Svíar sitja eftir með sárt ennið. Til að nudda salti í sárin þá sendu lagahöfundarnir sem sömdu danska lagið það lag fyrst í sænsku forkeppnina en það þótti ekki nógu gott fyrir hana. Þeir fóru þá með lagið sitt til Danmerkur og sigruðu keppnina þar og eru komnir með lagið í úrslitin.

Spá mína fyrir kvöldið ætla ég að setja svona:
1. Armenía
2. Azerbaijan
3. Ísrael
4. Belgía
5. Rúmenía
6. Serbía
7. Grikkland
8. Þýskaland
9. Írland
10. Rússland
11. Tyrkland
12. Ísland
13. Noregur
14. Moldavía
15. Danmörk
16. Frakkland
17. Georgía
18. Albanía
19. Spánn
20. Bosnía & Herzegóvína
21. Kýpur
22. Úkraína
23. Portúgal
24. Hvíta-Rússland
25. Bretland

Ég vil þó taka fram að keppnin í ár er alveg galopin og ég get sé sigurvegarnn koma úr einhverju af 9 efstu lögunum. Mér hefur aldrei fundist jafnerfitt með að greina keppnina eins og í ár.