Seinni forkeppnin og spá

Þröllinn skrifaði þann 26. maí 2010 í flokkinn Eurovision, Eurovision 2010

Litháen
Litháen hefur aldrei gengið betur en þegar þeir sendu flippatriði árið 2006, We Are The Winners endaði í sjötta sæti en síðan þá hefur þeim gengið illa og aðeins einu sinni komist upp úr forkeppninni en enduðu þá í 23. sæti í aðalkeppninni. Þeir fara því aftur í sprellið núna og syngja lagið East European Funk. Nú fara þeir jafnvel enn lengra með sprellið en síðast og enda atriðið á silfruðum pallíettu nærbuxum. Það er alltaf erfitt að spá hvernig svona flippatriðum er tekið en ég mundi segja að þetta lag eigi svona 50/50 séns á að fara áfram.

Armenía
Flott gella að syngja ágætislag með ógurlega stórt og mikið atriði, með fullt af eldi og flugeldum. Svo hjálpar það Armenum að það er mikið af Armenum sem búa utan heimalandsins. Hún hefur verið pínulítið shaky á æfingunum en það breytir því ekki að þetta er alveg 100% öruggt að fara áfram og ef hún syngur þetta vel þá á þetta pottþétt eftir að vera í toppbaráttunni.

Ísrael
Ísrael býður klárlega upp á gæsahúðaratriðið í ár. Rosalega falleg og kröftug ballaða, full af dramatík og vonandi vel flutt. Performansinn er látlaus eins og við á í svona lögum. Þetta er uppáhaldslagið mitt í ár og það er alveg að fljúga í gegnum þessa forkeppni og kemur áreiðanlega til með að enda í topp 10 í aðalkeppninni.

Danmörk
Danir voru fyrirfram taldir með eitt sigurstranglegasta lagið og þótti pottþétt að þeir væru að fara áfram. Æfingarnar hafa hins vegar gengið mjög illa hjá þeim og þau (og þá sérstaklega hann) hafa verið fölsk og vantað allt kemestrí á milli þeirra. Vindvélin er þó enn á sínum stað og stillt í botn. Eurovision nördarnir eru eitthvað skeptískir á að þetta eigi eftir að batna nóg til að komast áfram en mér finnst nú líklegra en ekki að þetta muni fara upp úr forkeppninni en ég er ekki að sjá það gera neinar rósir í aðalkeppninni. Eins og Hvítrússar sýndu nú í gær þá er allt í lagi að vera pínu falskur.

Sviss
Menn segja að Sviss sé það lag sem hafi versnað mest við það að fara á svið. Flytjandinn Michael von der Heide er ekki beint sá myndarlegasti og honum hefur ekki gengið neitt sérstkalega á æfingunum og bakraddasöngkonurnar víst verið alveg út úr kortinu. Auk þess er lagið frekar sviplaust og dapurt og svo vantar Sviss allar vinaþjóðir til að bjarga sér. Ég er því ekki að sjá Sviss komast áfram.

Svíþjóð
Svíþjóð stólar á krúttatkvæðin. Hin 19 ára Anna Bergendahl er afskaplega sæt á sviðinu með gítarinn sinn og hefur einhvern sjarma sem ég hugsa að ýmsir eigi eftir að falla fyrir. Æfingar hafa gengið vel og Anna er búin að vera solid á æfingunum. Þetta á alveg eftir að fljúga inn í úrslitin.

Azerbaijan
Azerbaijan er það land sem sennilega hefur tjaldað mestu til fyrir keppnina í ár. Safura er búin að ferðast um alla Evrópu til að kynna lagið sitt og til stóð að hún kæmi til Íslands en gosið í Eyjafjallajökli varð til þess að hún hætti við það. Þó að manni finnist það stundum full desperate þegar lönd leggja svona mikið í keppnina þá virðist það ansi oft skila árangri eins og dæmin sanna með Úkraínu 2004 og Rússland 2008. Safura hefur sett upp metnaðarfulla heimasíðu á slóðinni http://safura.eurovisiontalents.com sem meira að segja hefur verið þýdd á íslensku. Þó að ég sé ekki að fíla þetta lag neitt sérstaklega þá held ég að þetta sé sterkur sigurkandídat. Það byggi ég á eftirfarandi röksemdafærslu, keppnin er mjög jöfn í ár þar sem ekkert lag sker sig neitt áberandi úr eins og Noregur gerði í fyrra. Þá vega kosningablokkirnar þyngra á metunum og Sovíetblokkin er sú stærsta en þar hafa atkvæðin yfirleitt farið til Rússlands og Úkraínu. þar sem Rússar og Úkraínumenn eru ekki með neitt sérstök lög í ár finnst mér líklegt að Azerbaijan og Armenar munu fá nokkuð stóran hluta af þeim atkvæðum. Svo eru þessar þjóðir líka með innflytjandur dreifða um alla Evrópu þannig að stig frá Hollandi, Blegíu, Frakkalandi og fleiri vestur-Evrópuþjóðum kæmi ekki á óvart.

Úkraína
Þetta lag er bara leiðinlegt og alveg ótrúlegt að eftir þrjár undankeppnir í Úkraínu hafi þetta verið það besta sem þeir gátu fundið. Þó að Úkraína hafi alltaf komist áfram úr forkeppninni þá get ég bara ómögulega séð það að þetta geti komist áfram.

Holland
Hollendingar senda elstu 17 ára stelpu í heimi með lag sem hljómar eins og það sé frá 1965 og samið af Geirmundi Valtýssyni. Einfaldlega skelfilegt lag ef maður er orðinn eldri en sex ára og á ekki séns að komast áfram.

Rúmenía
Þetta verður væntanlega stuðlagið á euroklúbbunum eftir keppnina. Fínt stuð lag og flott gimmikk að vera með tvöfalt píanó á sviðinu. Söngkonan, Paula, er búin að vera eitthvað óákveðin með hvaða dressi hún eigi að vera í á sviðinu, á síðustu æfingu var hún í einhverjum ógurlegum silfurslimgalla en í dag var hún búin að skipta yfir í eitthvað einfaldara og látlausara. Þetta lag á eftir að fljúga í gegnum forkeppnina og mjög líklega eftir að enda í topp 10.

Slóvenía
Hvað gerist þegar maður blandar saman iðnaðarrokkara frá 1987 og balkanskri þjóðlagamúsík? Katastrófa!!! Þetta er eitt allra versta atriði sem hefur verið sent í eurovision frá upphafi og það breytir engu þó að stelpan sé voðalega sæt og í flottum þjóðbúning. Þetta er bara viðbjóður.

Írland
Írar senda gamla eurovision hetju, Niamh Kavanagh sigraði keppnina árið 1993 með lagið In Your Eyes. Það var eitt versta sigurlag allra tíma og hún virkaði fertug þá þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára. Nú er hún orðin fertug og tveimur árum betur og lítur bara betur út en hún gerði 1993 og lagið er bara fín írsk ballaða og á eftir að fljúga inn í úrslitin. Ekki skemmir það nú fyrir Írunum að koma beint á eftir Slóvenunum og Írar þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af flutningnum þar sem Niamh er frábær söngkona og á alveg örugglega eftir að gera þetta vel.

Búlgaría
Þetta lag er að gera nákvæmlega ekkert fyrir mig. Það er einhvern veginn hvorki fugl né fiskur, það er ekki gott danslag, það er ekki gott popplag og ekki góð ballaða. Miro á þó örugglega eftir að syngja þetta ágætlega en fyrir mína parta er hann einum of ánægður með sjálfan sig og atriðið er svolítið mikið over the top. Ég sé þetta lag ekki komast áfram þó ég geti ekki alveg útilokað það þá held ég að þetta lag muni sitja eftir og Miro á eftir að fara í brjálaða fýlu.

Kýpur
Kýpverjar tefla fram Wales-verjanum Jon Lilygreen og hljómsveitinni The Islanders sem samanstendur af þremur Bretum, Kýpverja og norskri stelpu. Þetta gæti hjálpað til við að vega upp á móti því að Grikkir sem gefa Kýpverjum alltaf 12 stig þegar þeir geta kepptu í fyrri forkeppninni og ætti að geta hjálpað eitthvað til með stigasöfnun. Þetta lag ætti nú að höfða til sama fólks og belgíska lagið í fyrri forkeppninni þó það sé nú ekki alveg jafngott. Það að auki held ég að það sé of mikið af öðrum ágætum ballöðum, eins og sænska, ísraelska og írska lagið. Mér finnst því ólíklegt að þetta lag fari áfram en það á þó smá séns.

Króatía
Króatar tefla fram stelpusveitinni Feminnem sem keppti fyrir Bosníu árið 2005 með slökum Abba slagara. Nú eru þeir með betra lag en 2005 en eitthvað hafa æfingarnar gengið misvel og eitthvað verið um falska tóna. Mér finnst lagið byrja vel en þegar líður á það finnst mér það versna og endar eiginlega með því að þær garga hver í kapp við aðra og það sem á að vera hápunkturinn í laginu endar eiginlega bara í einhverjum hávaða. Þetta lag er samt pottþétt að fara áfram og gæti orðið með í toppbaráttunni en það fær ekki mitt atkvæði.

Georgía
Georgíumenn hafa keppt tvisvar ef við teljum ekki með árið í fyrra þegar þeir máttu ekki vera með með lagið We Don’t Wanna Put In. Bæði skiptin komust þeir áfram og enduðu svon í 11. og 12. sæti. Í ár tefla þeir fram ballöðu sem gæti týnst svolítið í ballöðuflóðinu í þessari forkeppni. Þeir eiga þó ágætan séns á að komast áfram en engan veginn öruggt.

Tyrkland
Tyrkir komast alltaf áfram. Oftast eru þeir reyndar með ágæt lög líka og svo er einnig í ár. Þeir eiga því eftir að fljúga í gegn en ég efast um að þetta sé að fara að gera einhverjar rósir í aðalkeppninni.

Lögin tíu sem ég held að komist áfram úr þessari keppni eru því:

Armenía
Ísrael
Danmörk
Svíþjóð
Azerbaijan
Rúmenía
Írland
Króatía
Tyrkland
Svo kemst annað hvort Georgía eða Litháen og ég ætla að giska á að það verði Litháen sem komist áfram.