Jæja, nú styttist í Eurovision. Fyrra undanúrslitakvöldið fer fram 25. maí næstkomandi. Hér ætla ég að renna yfir þau lög sem keppa þar.
Moldavía
Eurovision keppnin byrjar með krafti í ár. Það er alltaf skemmtilegra þegar keppnin byrjar með smá fjöri heldur en þegar hún byrjar á leiðinlegri ballöðu. Það er hljómsveitin Sunstroke Project og söngkonan Olia Tira sem flytja lagið Run Away. Þetta ásamt Rúmeníu verður örugglega stærsti klúbb-hittarinn í Evrópu í ár og er í raun alveg allt í lagi lag. Ef eitthvað eitt lag er að taka atkvæðin frá Íslandi þá er það þetta þar sem það er að keppa svona ca. á sama markaði en er bara miklu betra lag heldur en það Íslenska. Fer pottþétt áfram.
Rússland
Er þetta djók eða er þeim fúlasta alvara? Eftir að hafa lesið mig smá til þá skilst mér að þetta sé djók atriði en ég er ansi hræddur um að ansi margir fari á mis við djókinn og þá verður þetta meira hlægilegt heldur en fyndið. Reyndar er kaflinn “What are you doing man? I’m looking at her photos” alveg sprenghlægilegur sama hvernig á hann er litið. Rússar hafa aldrei klikkað á því að komast upp úr forkeppninni enda alltaf getað treyst á diggan stuðning frá gömlu Sovíetríkjunum. Það er spurning hvort að hann dugi nú þegar lagið er svona vont. Ég set þetta svona á grensuna á því að komast upp, það fer að verulegu leiti eftir því hvernig djókurinn kemst til skila.
Eistland
Eistland fær verðlaun fyrir skrýtnasta lagið í ár, ótrúlega spes lag og ótrúlega spes video. Það hefði væntanlega verið betra fyrir þetta lag að vera svolítið aftar í röðinni til að fólk mundi eftir því en annars er ómögulegt að segja til um það hvaða áhrif það hefur í ár þar sem nú má byrja að kjósa um leið og fyrsta lag hefst. Það fer væntanlega svolítið eftir performansinum hvort þeir komist áfram eða ekki en ég mundi segja það væru meiri líkur en minni að þetta fari áfram, aðallega vegna þess að það sker sig töluvert úr.
Slóvakía
Slóvakar hafa tóku í fyrsta sinn þátt í fyrra og komust ekki áfram enda ekki með neitt sérstakt lag. Í ár koma þeir með miklu betra lag, þjóðlaga skotið popp sem þeir syngja á eigin tungu. Þetta lag hefur unnið töluvert á hjá mér og ég mundi segja að þeir væru alveg pottþétt á leið í aðalkeppnina í ár og gætu vel endað í topp 10 þar.
Finnland
Finnar hverfa 30 ár aftur í tímann og senda nú lag í þjóðlagastíl sem er mjög sambærilegt og þeir voru að senda ár eftir ár með döprum árangri á milli 1970 og 1980. Tvær ljóshærðar skvísur sem ganga undir nafninu Kuunkuiskaajat syngja lagið Työlki Ellää (hver segir svo að það sé flókið að bera fram Eyjafjallajökull), önnur þeirra spilar á harmonikku en báðar syngja. Það er alltaf erfitt að segja til um hverngi svona þjóðlög ganga upp þá get ég engan veginn spáð þessu lagi góðu gengi og þó það sé í lakari riðlinum þá held ég að það muni sitja eftir.
Lettland
Ung, ljóshærð og hugguleg stúlka syngur dramatíska ballöðu og spyr stórra spurninga. Kunnuglegt þema? Í fyrra spurði Jóhanna Guðrún “Is it true?”, nú spyr Aisha “What for?”. Lettar ætla sem sagt að reyna íslensku leiðina í ár. Munurinn er bara sá að í lettnesku forkeppninni söng hún alveg hrikalega falskt og gleymdi meira að segja textanum. Lagið er alveg allt í lagi þó það sér svo sem ekki það eftirminnilegasta og ætti alveg að geta farið áfram upp úr forkeppninni en það kemur 100% til með að velta á framistöðu hennar Aishu.
Serbía
Serbar náðu í sitt frægasta tónskáld, Goran Bregovic og fengu hann til að semja þrjú lög. Svo voru fengnir þrír ungir söngvarar til að flytja þau og úr því kom að Milan Stankovic var valinn til að flytja lagið Ovo Je Balkan. Lagið ber alveg merki Bregovic þó að hann hafi nú samið töluvert betri lög. Þetta er þó alveg ágætt og að mínu mati með betri lögum í keppninni í ár. Þetta er þó klárlega ekki allra og ég tel sigurmöguleikana litla en þetta fer 100% áfram úr þessari forkeppni.
Bosnía & Herzegovína
Bosníumenn hafa alltaf komist upp úr forkeppninni enda oftast verið með fín lög undanfarin ár. Nú klikka þeir hins vegar alveg því eins og Balkanballöður geta verið flottar þá finnst mér svona Balkanrokk vera alveg hundleiðinlegt. Það getur hins vegar vel verið að þetta fari áfram enda er þetta kannski skásta rokklagið í þessari forkeppni auk þess sem Balkanþjóðirnar eiga nokkra fulltrúa í þessari forkeppni því þar keppa auk Bosníumanna, Serbar, Makedóníumenn, Albanar og Grikkir sem stundum hafa kastað 12 stigunum sínum á nágrannana í norðri þegar Kýpverjar hafa verið fjarri góðu gamni. Ég mundi því gefa þessu lagi meira en helmingslíkur á að komast áfram.
Pólland
Pissupása. Pólverjar senda einhvern skrýtinn þjóðlaga-rokk-vals. Bara leiðinlegt og ég tel litlar sem engar líkur á að þetta fari áfram. Það verður samt fróðlegt að sjá hversu mörg stig þetta fær frá Íslandi.
Belgía
Belgum hefur gengið illa í þessari keppni, aldrei komist upp úr forkeppninni eftir að byrjað var með hana og aðeins einu sinni lent í topp 10. Nú tel ég þó að þessum álögum loki og held að Tom Dice fá alveg örugglega öll krúttatkvæðin fyrir Damien Rice-ballöðuna sína, Me And My Guitar. Þetta lag á eftir að fá sömu atkvæði og Lettar fengu árið 2005 með ballöðunni, The War Is Not Over og Írar fengu 2006 með lagið Every Song Is A Cry For Love. Þetta lag fer 100% áfram og gæti vel endað í topp 10.
Malta
Malta sendir rosalega hefðbundna Disney ballöðu sem þeir kjósa að kalla enn þá hefðbundnara nafni, My Dream. Þetta lag er ekki að gera neitt fyrir mig en gæti samt alveg farið áfram. Ég gef þessu lagi svona 50/50 séns.
Albanía
Albönum hefur gengið ágætlega að komast upp úr forkeppninni undanfarin ár en svo hefur þeim ekki gengið neitt sérstaklega í aðalkeppninni. Ég hugsa að þetta eigi eftir að falla í sama mót og komast nokkuð örugglega upp úr forkeppninni en svo á það eftir að gleymast í aðalkeppninni enda ekkert við þetta lag sem lætur mann muna eftir því. Juliana Pasha sem syngur lagið tók einn Friðrik Ómar á þetta í ár. Hún var búin að reyna þrisvar að komast áfram, 2008 lenti hún í þriðja sæti í albönsku forkeppninni, 2009 lenti hún í öðru sæti og nú komst hún áfram. Þetta fer mjög líklega áfram.
Grikkland
Grikkland hefur verið sú þjóð sem hefur gengið einna best undanfarin ár. Eftir að forkeppnin var tekin upp hafa þeir alltaf komist áfram og alltaf endað í topp 10, og einu sinni unnið. Lagið þeirra í ár er þó eitt leiðinlegasta lagið sem þeir hafa sent og söngvarinn er algerlega laus við allan sviðssjarma og getur ekkert hreyft sig. Lagið endurtekur sig aftur og aftur og er nánast alveg eins í 3 mínútur sem virðast fyrir vikið eins og 10. Þetta á nú samt alveg örugglega eftir að fljúga í gegnum forkeppnina en mig grunnar að þetta eigi ekki eftir að ná í topp 10 í aðalkeppninni.
Portúgal
Portúgal hefur verið ein ömurlegasta þjóðin í Eurovision frá upphafi þangað til eitthvað small hjá þeim 2008. Þá komu þeir með frábært lag, Senhora do Mar og svo komu þeir aftur með ljómandi fínt lag í fyrra. ÉG vonaðist því til þess að það kæmi önnur perla frá þeim í ár. Það olli mér því smá vonbrigðum þegar kom bara svona lala ballaða frá þeim í ár. Portúgalir eiga ekki margar vinaþjóðir en mega þó reikna með atkvæðum frá Spáni og hugsanlega Frakklandi en mér þykir heldur ólíklegt að það dugi til þess að komast áfram.
Makedónía
Makedónar eru sennilega með versta lagið í keppninni ár, annað Balkanrokk lag sem er enn þá verra en það bosníska, sungið á makedónsku og bíður upp á rappkafla og gítarsóló, hvað getur klikka? Ehmmmmmmmm… allt!!! Ég ætla rétt að vona að þetta lag komist ekki áfram. Það gæti þó gerst en ég hugsa samt ekki.
Hvíta-Rússland
Hvítrússneska ríkissjónvarpið valdi hljómsveitina 3+2 í innanbúðarkosningu og í upphafi ætluðu þeir að syngja annað lag en skiptu svo á síðustu stundu yfir í lagið Butterflies. Þetta er ekkert alslæmt lag en guð minn góður hvað það er EKKERT að gerast í þessu lagi. Ef það verða ekki allir sofnaðir eftir þetta lag þá er þetta nú alveg fullkomna lagið til að hafa fyrir framan okkur Íslendinga. Ég tel afskaplega litlar líkur á því að þetta lag fari áfram.
Ísland
Ég hef nú áður tjáð mig um íslenska framlagið í ár og verð að játa að ég er ekki mesti aðdáandi þeirrar lagasmíðar, svo ég kveði ekki sterkar að orði. Fyrirfram var ég eiginlega alveg viss um að við færum ekki áfram úr forkeppninni, lagið er ófrumlegt og við eigum engar vinaþjóðir í þessu undanúrslitakvöldi. En svo fáum við þennan líka fína dráttinn, þ.e. syngjum síðastir og beint á eftir döll leiðinlegri ballöðu svo það gæti hjálpað. SVo eru nú fleiri vond lög í þessu undanúrslitakvöldi heldur en á því seinna. Þannig að eftir á að hyggja eigum við alveg möguleika en ég mundi ekki veðja stórum fjárhæðum á það og það kæmi mér alls ekkert á óvart þó að við sætum eftir.
Þannig að svona líta grúppurnar út hjá mér:
Pottþétt áfram:
Moldavía
Slóvakía
Serbía
Belgía
Albanía
Grikkland
Kannski áfram:
Rússland
Eistland
Lettland
Bosnía & Herzegóvína
Malta
Ísland
Ekki áfram:
Finnland
Pólland
Portúgal
Makedónía
Hvíta-Rússland
Niðurstaðan er sem sagt sú að Ísland er eitt af sex lögum sem berjast um fjögur laus sæti.