Tapað - fundið???
Þetta lag vann þriðju sænsku forkeppnina á laugardagskvöldið.
2010 Sweden - Timoteij (Semi 3)
Ég hef heyrt þetta lag áður, og það í eurovision, ég kem því bara ekki alveg fyrir mig hvar. Ábendingar óskast í athugasemdakerfinu. Einnig er talað um það í sænskum fjölmiðlum að þetta sé stolið og þá eitthvað sænskt lag sem heitir Vinterland en það er ekki tengingin sem ég er með í kollinum. Heyra má Vinterland hér.
Ég fer svo að manna mig upp í að koma með ýtarlegt yfirlit yfir þau lög sem eru komin.